18ágúst
Jæja nú er ég loksins komin úr sveitasælunni og flutt aftur heim

Keyrði suður á laugardaginn og var í samfloti með honum Jón. Ferðin gekk áfallalaust fyrir sig. Nema mamma var frekar stressuð að ég myndi ekki komast alla leið á fína bílnum mínum hehe.En ekki svo gott.. þegar við vorum komin þá hentum við dótinu inn í íbúð hjá mömmu og kom rosalegur gegnumtrekkur.

og skelltist útidyrahurðin og Saga klemmdist á milli með báðar fætur

Laugardagskvöldinu var semsagt eytt upp á dýraspítala í taugaáfalli.. En betur fór en á horfðist því hún slapp alveg ótrúlega vel.. við ætluðum ekki að trúa því

hún er í bleiku gifsi öðru megin á framlöpp en slapp alveg hinu megin.. nema fékk smásár.Svo að ég er komin í hjúkrun hehe En eigum við ekki að trúa því að leiðin liggi bara upp á við.. eða hversu mikið á að leggja á mann
26júní
Komin tími á að slá garðinn. Maður finnur allt annað að gera en að skila skattframtalinu hehe En þetta var frábært ég er algjörlega búin á því að slá helv.. baunagrasið.. slátturvélin gaf tvisvar upp öndina og skrapp ég því upp í sjoppu og keypti bensín nema hvað ég helti bensíni yfir mig og er núna anga ég ekki aðeins af svitafýlu heldur blandast bensínilmur við hehe..
23júní
hmmm fröken tölvublind komin með bloggsíðu hehe.. Er búin að vera sveitt að taka til hérna .. það er eins og það hefði orðið sprenging.. Það jafnast ekkert á við að taka til, ryksuga og vaska upp.. Tala nú ekki um þegar maður er þunnur hehe

Var inn á vísir áðan og þar var frétt um að hvolpur fannst upp í Kúagerði og eigandinn hafði grafið hann lifandi.. hvolpurinn var lifandi er mjög máttfarinn og var búinn að vera grafinn þarna undir eitthverri steinhrúgu í allt að SÓLAHRING....Hvað er að fólki ..eru sumir tilfinningalausir.. það var víst búið að leita uppi eigandann og verður forvitnilegt að heyra hvernig málið endar... Mín tillaga er sú að grafa manninn í sólahring og sjá hvernig mannfýlunni líkar prísundin. Svo var dauðaslys á hafnarfj vegi þar sem ungur strákur lést. Fólksbíll fór út af.. Þau voru sex í bílnum..aðeins of margir...
En Birna sys fór heim í hafn í morgun og tók Nökkva með sér. Svo að ég er bara ein í kotinu (plús sex dýr) hehe..